Þróunarfélag Snæfellinga ehf. var stofnað 7. nóvember 2011. Tilgangur félagsins er að starfa á breiðum grunni að framþróun og eflingu atvinnulífs og samkeppnishæfni byggðarlaga á Snæfellsnesi.
Stjórn félagsins skipa:
- Halldór Árnason hagfræðingur Samtaka atvinnulífsins sem formaður,
- Kristjana Hermannsdóttir umboðsmaður SJÓVÁ og bæjarfulltrúi Snæfellsbæ, meðstjórnandi,
- Pétur Ágústsson framkvæmdastjóri Sæferða, meðstjórnandi,
- Runólfur Guðmundsson skipstjóri, meðstjórnandi
- Georg Andersen hjá Valafelli hf. Ólafsvík.
Varamenn:
- Sigríður Finsen hagfræðingur, Grundarfirði,
- Rósa Guðmundsdóttir framleiðslustjóri hjá Guðmundi Runólfssyni hf. og bæjarfulltrúi Grundarfirði,
- Skarphéðinn Berg Steinarsson Sjávarborg ehf, Stykkishólmi.
Framkvæmdastjóri Þróunarfélags Snæfellinga er Sturla Böðvarsson Stykkishólmi. Sími 863 8888 og netfang sturla@sturla.is